|
Lífið í Óman |
|
15.05.2012 11:54Indoors again ...Það hefur nú ekki verið mikið um að vera síðan við komum til baka úr ferðalaginu enda heitasti tíminn skollinn á hérna megin. Fer yfir 40 gráður á daginn og raaaakt... En við í mömmuhópnum ætlum að vera extra duglegar að skipuleggja hittinga innandyra næstu dagana. Svo niðurtalningin er hafin, 4 vikur í Ísland! Loksins, eftir mikið þref og streð (eins og Ómönum einum er lagið) er búið að staðfesta flugmiðana fyrir okkur Álfrúnu Lóu. Við komum með sama flugi og Katrín mágkona og Steinar þann 11. júní (þau koma til okkar hingað í Muscat um mánaðarmótin maí/júní). Jón kemur síðan 30. júní og verður í þrjár vikur. Við mægður verðum hins vegar út ágúst á meðan ramadan/föstumánuðurinn er. Ég freistaðist til að fara niður á strönd í dag - það var í seinasta skiptið í bili! ![]() Skrifað af Ingu 05.05.2012 08:32Smá ferðasagaErum að jafna okkur eftir maraþon ferðalagið heim á miðvikudaginn. Við Álfrún fengum kvef næst seinasta daginn í Tælandi og erum enn með hornös og ég er ennþá með hellu fyrir eyrunum :/ Fyrir utan þetta gekk allt vel og við lentum í Muscat kl 21:30 á miðvikudagskvöldið í 36 gráðu hita!
Singapore kom ótrúlega á óvart, sérstaklega þar sem maður kemur frá Muscat en Singapore er sennilega hreinasta og skipulagðasta borg í heimi! Þar er allt til alls en verðlagið heldur í hærri kantinum (aftur, amk mv Muscat en kannski ekki mv Ísland). Þar var non stop þrammað um borgina (nema þegar stoppað var til að bragða ýmsa framandi asíska rétti, sötra bjór og bragða Singapore Sling) frá morgni til kvölds. Chinatown, Litlle India, búðarráp, afþreyingar eyjan Santosa, dýragarðurinn ofl. var á dagskrá.
Frá Singapore til Phuket á Tælandi er uþb 1,5 klst flug. Frá Phuket var keyrt til Khao Lak þar sem við tók letilíf! Þetta er lítll túristabær við ströndina, huggulegt og vinalegt. En regntíminn er að byrja núna svo það var sem betur fer ekki allt yfirtroðið af Þjóðverjum. Hitastigið var venjulega í tæplega 30 gráðum en líka rakt... Það rigndi yfirleitt á næturnar og þá fylgdu þrumur og eldingar. Lentum einu sinni í úrhelli í bænum og tókum taxa (opinn pallbíll) heim á hótel. Seinasta daginn drifum við okkur út í náttúruna - og þvílík náttúra! Þvílík gróðursæld og fegurð sem þarna er að finna. Filip pantaði ferðina fyrir allan hópinn (vorum 3 pör, Svíarnir Sara og Filip og Serbarnir Jelena og Dejan) og minntist á að það fylgdi lítið barn með, jújú allt í himna lagi sögðu þeir. Þegar á reyndi var ég nú alls ekki sammála, sérstaklega þar sem það var breytt út af dagskránni án þess að láta okkur vita og það var farið með okkur i skuggalega hellaferð með einungis 2 ljós fyrir allan hópinn. Allavega, ég með hjartað í buxunum en allt fór vel að lokum :þ Skondið að keyra um þjóðvegina þarna því venjulega á maður von á að sjá hesta eða kindur á beit - en ekki FÍLA!
Þar að auki fór Jón í fyrrgreinda köfun og á Thaibox keppni, hvoru tveggja áhugaverð upplifun. Hin hjónin tóku sig líka til eitt kvöldið á fóru á cabaret þar sem eingöngu ladyboys sáum um að dilla fiðruðum bossum og brjóstum! Ku líka hafa verið áhugaverð upplifun...
Álfrún Lóa fékk að vanda ótæpilega athygli fyrir sitt ljósa hörund og hvíta hár, en allir voðalega vingjarnlegir.
Búin að setja inn nokkrar myndir en hellingur á leiðinni. Vona að þetta blessaða kerfi hérna virki almennilega einu sinni!!
![]() Skrifað af Ingu 30.04.2012 00:17Póstkort frá Tælandi![]() Hér er Álfrún Lóa að fara að taka hundraðasta sundsprettinn í hótelsundlauginni, litlu snúllunni líkar sko lífið :) Snilldin er að maður fer beint út í laugina úr herberginu okkar! Fyrst er pallur með sólstólum og viftu, svo buslpallur og svo sundlaugin í beinu framhaldi. Það er "low season" svo við fengum ókeypis upgrade í þessi herbergi, ekki slæmt ;) Hótelið er sumsé frábært, tæjju maturinn yfirleitt góður (full sterkur fyrir suma bragðlauka), bjórinn góður, nudd og þh ódýrt og á hverju horni, aðeins hægt að versla og á morgun ætlum við að fara í eina dagsferð og skoða okkur aðeins meira um. Jón fór jú líka í köfun um daginn sem var frábær upplifun enda staðurinn á topp 10 lista yfir bestu köfunarstaði í heiminum. Skrifað af Ingu 22.04.2012 08:49Næsta ævintýrier handan við hornið! Flug í kvöld og nótt - Singapúr á morgun!! Verðum þar í 3 daga og höldum síðan áfram til Tælands þar sem við gistum á þessum stað í tæpa viku: Ayara Villas Löööng nótt fram undan, en síðan hrikalega spennandi og skemmtilegir dagar!! Skrifað af Ingu 22.04.2012 02:53Frh af veðrinuNema hvað, þessi litli skúr um daginn varð að óveðri um kvöldið! Byrjaði með sandstormi og aðeins meiri rigningu, síðan úrhelli og þrumur alla nóttina. Maður hefur nú svosem lent í óveðri áður og ekki í frásögur færandi en ég verð að játa að mér stóð ekki alveg á sama þarna um kvöldið. Gluggarnir héldu hvorki vatni né vindum, ekki byggðir fyrir svona veður. En allavega, okkur sakaði ekki. Hins vegar fékk Jón að kljást við kaosina sem veðrið skapaði í háloftunum á háanna tíma, úff, en allt fór vel að lokum! Sem betur fer gekk þetta niður um nóttina, tekið kl 7 um morguninn: ![]() Svoooooooo FERSKT og hreint !!! Og sjaldséður risapollur í götunni okkar.. Skrifað af Ingu 18.04.2012 07:52Veðrið (sumsé blogg um ekki neitt?)Það hafa greinilega veðrabreytingar átt sér stað á meðan við vorum í burtu, það er búið að vera ansi heitt (upp undir 40 gráður) og nokkuð rakt líka. Þá er gott og gaman að geta buslað svolítið á svölunum:
Annars hefur rignt aðeins undanfarna daga sem er mjög óvenjulegt og hitinn aðeins lækkað aftur svo það er smá framlenging á útivistartímanum, nice! Það er mun þolanlegra núna heldur en á sama tíma í fyrra (ekki það að maður sé eitthvað að aðlagast þessum hita). Við Álfrún Lóa erum duglegar að nýta síðustu dagana og fara niður á strönd í könnunarleiðangra. Nema hvað í gær fór að rigna á meðan og litli Ómaninn kunni ekki alveg að meta þessa skyndilegu útisturtu:
Skrifað af Ingu 08.04.2012 09:48PáskadagurGleðilega páska!! Ótrúlega lítið páskalegt hérna megin. Það var þó fengið sér "malasian lamb curry" í hádeginu og Nóa páskaegg með Starbuckskaffinu en við vorum svo heppin að fá tvö egg frá Evu Mjöll og Gunna sem við hittum í Prag um daginn :) Málshættirnir voru: "Fénar farandi, sveltur sitjandi" og "Annars byrði er öðrum létt". Jón fór svo að vinna kl 3. Eftir það dunduðum við mæðgur okkur heima og fórum niður á strönd að leika þegar kólnaði aðeins. ![]() Litla yndisleg - áður en hún fór að sulla og við urðum blautar og söndugar upp fyrir haus Annars á hann pápi minn afmæli í dag og er hvorki meira né minna en sextugur! Hugurinn er því meira heima við í dag en við þessa "gervi"páska hér... Skrifað af Ingu 20.03.2012 12:57Jahérna hér mars flýgur áfram ...Það eru veðrabreytingar í lofti, "bloody hot" fer að ganga í garð. Það hefur verið vindasamt og í gær var alvöru sandstormur! Það þurfti meira að segja að loka flugvellinum (aðfluginu) í 1.5 klst í gærkvöldi. Þrátt fyrir að hafa lokað öllum gluggum þá var sallafínt ryklag yfir gólfunum eftir nóttina. Svona veðurbreytingum fylgja gjarnan kvefpestir segja þeir, ég náði mér í eina :/ en það er nú gott sem gengið yfir nú þegar. Sem betur fer því að á morgun leggjum við í'ann. Ætlum aðeins að kæla okkur niður í henni Evrópu og fljúgum til Prag þar sem við dveljum í rúmlega 4 daga. Þar ætlum við að hitta góðan hóp fyrrum kollega Jóns og fylgifiska en tilefnið er að það eru 10 ár liðin frá því að Jón og Co lærðu þar flugumferðarstjórn. Nú og ekki fannst okkur taka því að flúga alla þessa leið fyrir 4 daga þannig að við ætlum að njóta kuldans aðeins lengur. Tökum bílaleigu bíl og förum á flandur ;) Skrifað af Ingu 19.02.2012 12:31Góður afmælisdagurÞað kom heldur betur á óvart hvað það var gaman að eiga afmæli í gær, gerði nýju töluna aðeins auðveldari ;) Það hittist þannig á að okkur Álfrúnu var boðið þennan dag á "playdate" heima hjá sundkennaranum okkar henni Emmy. Tayiaba (mamma hans Baasil sem hefur sést á ansi mörgum myndum hérna) kom mér þar á óvart með súkkulaðiköku svo við áttum góða leik- og kjaftastund yfir köku og kaffi áður en við fórum út í garðinn og skelltum okkur í sund með börnin. Eftir sund og leik röltum við yfir á pizzastað þar sem ég pantaði mér pizzu í fyrsta skipti í Muscat! Dásemdar morgun, vorum reyndar ekki komnar heim fyrr en hálf 4 Þar beið karlinn með þær fréttir að Álfrún væri að fara í næturpass!!! Ég vissi ekki meir en pakkaði í töskur. Fór samt í jógatíma eins og venjulega á laugardögum ásamt vinkonunum Söru og Jelenu. Eftir það var brunað heim í snatri, skipt um föt og keyrt með Álfrúnu til Söru og Filips sem sáu um næturpassið - sem gekk vandræðalaust ;) Jón keyrði svo að einu af flottari hótelum Muscat, The Chedi þar sem við tjékkuðum inn. Við tók 2 klst borðhald yfir dýrindis mat og þjónustu. Herbergið sjálft var heldur ekki af verri endanum, meira að segja klósettpappírinn var innsiglaður. Morguninn eftir var ég sendi spa-ið - himnaríki á jörðu, halelúja og amen! Feitt prik í kladda húsbandsins - dekurrófan kveður ![]() Skrifað af Ingu 01.02.2012 13:30JógaKjelluhópurinn er núna alltur kominn í jóga 2x í viku, það sem maður hefur nú gott af því! Var með harðsperrur í næstum því viku eftir fyrsta tímann, held ég hafi bara aldrei verið í verra formi :/ Reyndar er þetta aðeins kröftugri tímar en þeir sem maður á að venjast úr "venjulegu jóga", úff en sama! Kennarinn er indversk kona (hefur viðurnefnið Grimmhildur Grámann) sem veit hvað hún syngur og lætur mann taka á því til hins ýtrasta og gefur manni gjarnan "royal kick" til að ná fram teygum sem maður hélt ekki að maður gæti. Það er notast við ýmis props í þessu jóga: ![]() Er ekki ennþá búin að prófa róluna.... ![]() Skrifað af Ingu 30.01.2012 13:29Í grænum sjóÞað var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við hér einn morguninn í sl viku. Sjórinn var GRÆNN: ![]() Hef ekki séð þetta áður en það gerist víst að hafið fer einu sinni á ári í svona "detox" og þá er ekki mælt með því að fólk fari í sjóinn, kannski eitraðir þörungar þar á ferð ... Skrifað af Ingu 27.01.2012 10:14Dagsferðir frá MuscatÞað er af nægu að taka þegar kemur að dagsferðum frá Muscat, margt að finna fyrir bæði náttúruunnandann og menningarvitann. Við fórum í eina ferð fyrir adrenalínfíkilinn um daginn og var ferðinni heitið í gegnum"Snake Canyon". Það er keyrt á punkt A og labbað í gegnum gilið yfir á punkt B. Því voru 2 bílstjórar með í för til að ferja bílana á milli, pabbarnir í hópnum þeir Jón og Justin sáu um torfæruaksturinn og litlu stelpurnar á meðan hinir, ég, Ásta, Ben og sænsku hjónin Filip og Sara lögðu í gönguna. Filip fór fyrir hópnum enda búin að fara þarna tvisvar sinnum áður (og m.a. reynt að drepa Jón þarna á flóðatímum...) Þetta var mun meira krefjandi ferð en ég átti von á en í henni fólst ekki bara ganga heldur fullt af sundi í, já trúið því eða ekki, ííííísköldum fjallakeldum - ég man hreinlega ekki eftir því að hafa orðið svona kalt! Það nær engin sól niður í gilið og því vorum við flest farin að hríðskjálfa fljótlega en ferðin tók um 2 og hálfa klst í það heila. Það jók því á erfiðleika stigið þegar þurfti að klifra og skríða í klettum, síga niður kaðal, hoppa fram af ótal björgum og á bólakaf í ískalt vatnið. Lengsta sundið var í gegnum myrkan helli þar sem leðurblökur er jafnan að finna - ég synti bara með höndunum til að eiga ekki á hættu að reka niður tærnar í leðurblökuskít. Já þetta var ótrúleg ævintýraför! Það var því töluvert svekkelsi að uppgötva að vatnshelda myndavélin sem ég var með varð batteríislaus nánast strax í byrjun, það voru svo ótrúlega mörg flott móment til að "festa á filmu" :/ kannski maður eigi eftir að leggja í þetta aftur síðar og þá verður sko örugglega full rafhlaða!! Loksins sáum við svo glitta í pabbana og stelpurnar sem höfðu labbað á móti okkur inn gilið með nesti og nýja skó. Áttum síðan notalega pikknikkstund undir sólinni :) ![]() Fyrsta stökk ferðarinnar var þarna fram af :) Nokkar fleiri myndir í albúmi Skrifað af Ingu 03.01.2012 08:58Gæludýrahald í MuscatSamkvæmt islam þá eru svín og hundar talin "óhrein" dýr. Blátt bann er við neyslu svínakjöts og strangt tiltekið má ekki einu sinni snæða mat sem hefur verið eldaður með sömu áhöldum og svínakjöt. Hér er ein verslunarkeðja sem selur svínaafurðir í litlu horni og á uppsprengdu verði. (Þó er það eins með svínakjötið og annað sem samkvæmt trúnni telst syndsamlegt svo sem áfengi, framhjáhald ofl þá eru margur heimamaðurinn sem tekur bannið mátulega hátíðlegt...) ![]() En að öðrum óhreinum dýrum, hundunum. Heimamenn hafa yfirleitt engin gæludýr, einstaka ketti kannski. Hins vegar eru margir útlendingar sem vilja hafa hunda, gott og vel, það er leyfilegt en ekki vel séð af heimamönnum. Hvað gerist svo þegar útlendingurinn flytur af landi brott og það er dýrt og mikil fyrirhöfn að losa sig við hundinn - þá er bara einfaldast að henda honum á götuna! Þar hafa ómönsk börn það að leik að misþyrma þessum vesalings dýrum sem síðan fara að líta á manninn sem óvin. Svo taka þessi hundagrey að fjölga sér og núna eru mörg stór hundagengi sem leika hér lausum hala í nágrenninu. Lífsbaráttan er nokkuð hörð þar sem ekki er mikið um æti á götunum. Fjandsamlegt dýrseðlið heyrir maður síðan berlega inn um gluggann á næturnar þegar gengjunum lendir saman. Þetta vandamál hefur undið upp á sig en það er nú eitt af verkefnum lögreglunnar hérna að skjóta þessi dýr en þeim tekst venjulega ekki ætlunarverkið heldur særa aðeins dýrin. Það lendir síðan á dýralæknum borgarinnar annað hvort að klára verkið eða þá að reyna að tjasla uppá dýrin! Sorglegt allt saman en þessi samtök reyna nú af veikum mætti að bæta stöðuna, það má endilega bæta við undirskriftum... Það sem mér finnst annars frábært að fara út að ganga með kerruna hérna en það sem ég er með hjartað í buxunum þegar þessir hundar koma geltandi :/ eða þegar flassarinn lætur á sér kræla, úff það er önnur saga..!! ![]() Tekið út um stofugluggann ![]() Skrifað af Ingu 27.12.2011 05:03Hjartagullið eins ársÞá er heilt ár liðið síðan Álfrún Lóa kom í heiminn. Kærleiksríkt, viðburðarríkt og lærdómsríkt ár, heldur betur. Alltaf jafn yndisleg litla gullið og fær mann reglulega til að tárast yfir því hvað lífið er fallegt.
Litla ómanska prinsessan okkar 1 árs. Kærar þakkir fyrir góðar kveðjur og sendingar að heiman í tilefni dagsins! Við fengum líka nokkra góða gesti til okkar í afmæliskaffi í gær, fullt af nýjum myndum í des albúminu hennar.
Skrifað af Ingu 20.12.2011 13:21JólatregiJól eftir 4 daga, ótrúlegt! Álfrún Lóa eins árs eftir 6 daga, jafnvel ótrúlegra! Sami tími í fyrra einkenndist af tilhlökkun og undirbúningi fyrir komu erfingjans og fátt sem ýtti undir jólastemningu. Þessa dagana játa ég hinsvegar á mig smá jólaheimþrá, hlusta repeat á þetta lag með Eivöru sem kveikir einhvern íslenskan jólatrega í mér. Þó þetta sé nýtt lag þá vekur það samt upp dásamlegar æskuminningar frá jólum. Allavega, þá er planið þannig að við æltum kannski að fá okkur jólatré á morgun, sjáum til hvernig úrvalið verður... Á aðfangadagskvöld ætlar litla fjölskyldan að snæða hangikjet og meððí, kannski bara á svölunum! Opna kort og pakka og skypast. Á jóladag förum við með vinahópnum (þe þeir sem eru á svæðinu) á alveg rooosalegt jólahlaðborð. Á annan verður svo smá afmæliskaffi hérna hjá okkur. Síðan fer Jón aftur að vinna og verður að vinna yfir áramótin. Jólakort og pakkar, frágengið, vona bara heitt og innilega að allt komist til skila! Ef ekki þá er það væntanlega póstsamgöngum að kenna, annars gatasigtinu hausnum á mér... Skrifað af Inga Flettingar í dag: 46 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 26 Gestir í gær: 5 Samtals flettingar: 34305 Samtals gestir: 8546 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:23:45 |
Eldra efni Tenglar |